Uppskriftir
Forsíða Uppskriftir
Laxatartar með ólífum og kapers

Laxatartar með ólífum og kapers
Leiðbeiningar:
Stingið út kringlóttar sneiðar úr maltbrauðinu með útstungujárni. Ekki er nauðsynlegt að notast við útstungujárn, allt eins er hægt að nota glas til að stinga út brauðið og móta tartarinn í höndunum á borði.
Hakkið eða saxið hráefnið í laxablöndunni og blandið saman, saltið og piprið eftir smekk. Skiptið laxablöndunni í 4 hluta og mótið
kringlótt „buff“ jafnstór og brauðsneiðarnar.
Setjið laxabuffin ofan á brauðið, skiljið eggin í sundur og berið eggjarauðuna fram með í hálfri skurninni í eggjabikar. Skreytið
með steinseljukvistum.

Hráefni:

4 eggjarauður
4 sneiðar maltbrauð


Laxablanda
400 g lax, roð- og beinlaus
1 lítill rauðlaukur
2 sýrðar smágúrkur
6 grænar ólífur (spánskar)
2 msk kapers
2 sólþurrkaðir tómatar
2 msk jómfrúarolía
salt og svartur pipar úr kvörn