Leiðbeiningar:
Hreinsið humarinn en skiljið endann á halanum eftir. Blandið maísenamjöli, salti og cayenne pipar saman í skál. Setjið kókosmjölið í aðra skál. Þeytið saman kókosmjólk og eggjahvítur, veltið humrinum upp úr maísenamjölinu, dýfið honum því næst í eggjablönduna, svo í kókosmjölið og þrýstið létt. Hellið olíu í pott þannig að hún sé 5 cm á dýpt. Hitið vel og steikið humarinn í litlum skömmtum og látið olíuna renna af honum á eldhúspappír. Setjið jurtirnar í matvinnsluvél og maukið, lækkið hraðann á vélinni og hellið olíunni varlega út í og kryddið svo með salti og pipar. Berið humarinn fram með olíunni og klettasalati.
Hráefni:
12 humarhalar ¼ bolli maísenamjöl ¾ tsk salt ¼ tsk cayenne pipar 1 bolli kókosmjöl 2 eggjahvítur 1 msk kókosmjólk olía til djúpsteikingar
Kóríanderolía 1 búnt ferskt kóríander 10 fersk myntulauf 2 dl jómfrúarolía sjávarsalt og nýmalaður pipar
|