Uppskriftir
Forsíða Uppskriftir
Laxasteik með kryddjurtasósu

Laxasteik með kryddjurtasósu
Leiðbeiningar:
Blandið saman soðinu og hvítvíninu og sjóðið niður um helming, setjið það í matvinnsluvél ásamt kryddjurtunum og maukið saman. Setjið maukið aftur í pott og bætið rjómanum saman við, látið sjóða við vægan hita í 5 mínútur en minnkið þá hitann og látið standa í 10–15 mínútur. Þeytið eggjarauðurnar og blandið þeim varlega saman við sósuna. Steikið fiskinn á pönnu í olíu í 3 mínútur á hvorri hlið, kryddið með salti og pipar.

Hráefni:

4 x 250 g laxasteikur
2 msk jómfrúarolía

Sósan
375 ml fiskisoð
125 ml hvítvín
3 msk saxaður graslaukur
3 msk söxuð steinselja
2 msk söxuð basilíka
2 msk saxað tarragon
250 ml rjómi
2 eggjarauður

Jurtagljáðar gulrætur - tilvalið meðlæti
500 g gulrætur
20 g smjör
1 msk sykur
1 msk sítrónusafi
2 msk steinselja, söxuð

Afhýðið gulræturnar og skerið í mjóar lengjur, eins og stórar eldspýtur, og sjóðið í léttsöltu vatni í
4–5 mínútur. Sigtið. Bræðið smjörið á pönnu, bætið sykrinum í og svo gulrótunum og hrærið þessu öllu saman í smástund. Bætið sítrónu-safanum og steinseljunni í og hrærið vel saman.