Leiðbeiningar:
Brúnið lundirnar í olíu á pönnu við mikinn hita. Kryddið með salti og pipar, takið af pönnunni og leggið til hliðar. Bræðið smjörið á pönnunni og steikið sveppina og hvítlaukinn í nokkrar mínútur með salti og pipar. Bætið þá karrí, papriku og tómötum saman við og hrærið saman í eina mínútu. Hellið kókosmjólkinni út í og sjóðið í 10 mínútur eða þar til sósan fer að þykkna. Setjið kjötið út í og sjóðið í 3–5 mínútur eftir stærð. Stráið basilíkunni yfir og berið fram.
Hráefni:
800 g lambalundir 25 g smjör 400 g ferskir sveppir, jafnvel villtir, skornir gróft 2 hvítlauksgeirar, saxaðir 1 dós kókosmjólk 4 tómatar, skornir í fernt 1 tsk karrí 1 tsk paprikuduft 10 fersk basilíkublöð jómfrúarolía sjávarsalt og nýmalaður pipar
|