Uppskriftir
Forsíða Uppskriftir
Innbakað nauta framhryggjarfillet

Innbakað nauta framhryggjarfillet
Leiðbeiningar:
Steikið sveppina upp úr olíunni á pönnu í nokkrar mínútur. Bætið þá hvítlauk og skalottlauk út í og steikið áfram í 3–4 mínútur. Hellið púrtvíni á pönnuna og sjóðið þar til vökvinn hefur gufað upp. Kælið.
Steikið kjötið vel á öllum hliðum og kælið. Kryddið með salti og pipar. Leggið lag af sveppamauki á smjördeigið og svo kjötið ofan á. Þekið kjötið með sveppamauki og penslið smjördeigið allt í kringum kjötið með egginu. Leggið smjördeig ofan á kjötið og notið gaffal til að þrýsta deiginu saman. Penslið allt deigið með egginu og bakið í ofni við 180 °C í 25–30 mínútur eða þar til kjötið nær 57 °C í kjarna. Takið þá kjötið út og látið standa í 10 mínútur áður en það er skorið.

Sósan
Setjið madeira vín, lauk og timjan í pott og sjóðið þar til ¹⁄³ er eftir, bætið þá soðinu í og sjóðið þar til fer að þykkna. Hrærið þá smjörinu saman við og kryddið með salti og pipar.

Hráefni:

800 g nauta framhryggjarfillet
smjördeig
jómfrúarolía til steikingar
500 g sveppir, saxaðir
1 dl saxaður skalottlaukur
2 msk saxaður hvítlaukur
200 ml púrtvín
sjávarsalt og nýmalaður pipar
1 egg
3 msk jómfrúarolía
sjávarsalt og nýmalaður pipar

Madeirasósa
650 ml madeira vín
6 msk saxaður skalottlaukur
3 tsk ferskt timjan, saxað
650 ml nautasoð
6 msk smjör
sjávarsalt og nýmalaður pipar

Kartöflugratín með kóngasveppum - tilvalið meðlæti
800 g kartöflur
100 g þurrkaðir sveppir
3 hvítlauksgeirar, saxaðir
500 ml rjómi
örlítið múskat
sjávarsalt og nýmalaður pipar
Leggið sveppina í heitt vatn til að mýkja þá. Blandið saman rjóma, hvítlauk og múskati og kryddið með salti og pipar. Takið sveppina úr vatninu og þerrið. Skerið kartöflurnar í þunnar sneiðar og leggið í eldfast mót í þunnt lag til skiptis við sveppina. Hellið rjómanum yfir og bakið við 200 °C í
40–60 mínútur.