Uppskriftir
Forsíða Uppskriftir
Nauta rib eye heilsteikt með hvítlauk og piparrót




Nauta rib eye heilsteikt með hvítlauk og piparrót
Leiðbeiningar:
Látið kjötið ná stofuhita áður en það er meðhöndlað. Setjið gulrætur, rauðlauk, hálfu hvítlaukana og steinseljurótina í botninn á eldföstu móti og leggið kjötið ofan á. Dreypið smá skvettu af olíu yfir allt saman. Blandið saman í skál hvítlauksgeirum, piparrót, olíu, salti og pipar og hrærið saman. Penslið kjötið með maukinu og setjið í 180 °C heitan ofn. Bakið þar til það hefur náð 59 °C í kjarna. Þetta gæti tekið 1½ klst. Safinn af kjötinu getur komið í stað nautasoðs á sveppina.

Villisveppir
Setjið smjörið og smá skvettu af olíu á pönnu og hitið vel. Þegar smjörið fer að freyða eru sveppirnir settir á pönnuna ásamt timjan og steikt í nokkrar mínútur. Kryddið með salti og pipar. Hellið rauðvíni út á og notið trésleif til að skafa botninn á pönnunni. Látið rauðvínið sjóða nánast alveg niður. Bætið kjötsoðinu út í og sjóðið í 1–2 mínútur.Hrærið rjóma og graslauk saman við og berið fram.

Hráefni:

2 kg nauta rib eye
5 hvítlauksgeirar, saxaðir
2 hvítlaukar, skornir í tvennt
1½ dl fersk rifin piparrót
1 dl sjávarsalt
½ dl nýmalaður pipar
1 dl jómfrúarolía
2 gulrætur, afhýddar og skornar í bita
2 steinseljurætur, afhýddar og skornar í fernt
1 rauðlaukur, afhýddur og skorinn í fernt


Villisveppir
1 msk ósaltað smjör
jómfrúarolía
1 kg blandaðir sveppir
(t.d. kastaníusveppir, shiitaki-, kantarellur, Flúðasveppir)
lauf af 2 timjangreinum
sjávarsalt og nýmalaður pipar
120 ml rauðvín
60 ml nautasoð
60 ml rjómi
1 msk graslaukur, saxaður