Uppskriftir
Forsíða Uppskriftir
Nautafillet með kryddsmjöri og bökuðu grænmeti

Nautafillet með kryddsmjöri og bökuðu grænmeti
Leiðbeiningar:
Skerið kartöflurnar í 4 báta, afhýðið sætu kartöfluna og skerið í 3–4 cm þykkar sneiðar. Afhýðið hvítlaukinn og þrýstið hnífsblaðinu ofan á þannig að hvítlauksgeirarnir merjist aðeins. Saxið chilipiparinn gróft og afhýðið perlulaukinn. Setjið allt saman í eldfast mót og kryddið vel með salti og pipar. Bakið við 180 °C í 40 mínútur. Kryddið kjötið með sjávarsalti og nýmöluðum pipar og steikið á pönnu í eina mínútu á hvorri hlið eða þar til það er vel brúnað á báðum hliðum. Setjið á grind og bakið í ofni við 180 °C í 10–12 mínútur. Takið kjötið út og látið standa í 5–8 mínútur.

Kryddsmjör
Blandið öllu sem á að fara í kryddsmjörið saman í skál. Hrærið saman. Gott er að rúlla smjörinu upp í álpappír og kæla þar til
það er notað.

Hráefni:

800 g nautafillet, skipt í 4 steikur
jómfrúarolía til steikingar
salt og pipar

Kryddsmjör
200 g smjör, við stofuhita
½ tsk ferskt chili, saxað
1 tsk hvítlaukur, saxað
1 dl ferskt kóríander, saxað
½ dl steinselja, söxuð
nýmalaður pipar

Bakað grænmeti
4 meðalstórar kartöflur
1 sæt kartafla
6 vorlaukar
1 hvítlaukur
½ ferskur rauður chilipipar
20 perlulaukar
1½ dl jómfrúarolía
sjávarsalt og nýmalaður pipar