Leiðbeiningar:
Stráið salti og pipar á endurnar og setjið í 210 °C heitan ofn í 10 mínútur. Lækkið ofnhitann í 160 °C og hafið ofninn opinn í smástund til að leyfa mesta hitanum að rjúka úr honum. Steikið endurnar áfram í 40 mínútur. Setjið soðið, vínið og rjómann í pott og bakið upp með smjörbollunni. Bætið hnetum og sultu í og bragðbætið með salti, pipar og kjötkrafti. Litið með sósulit.
Hráefni:
2 villiendur salt og pipar ½ l andasoð 1 dl púrtvín 2 dl rjómi ½ dl ristaðar furuhnetur 1 msk sólberjasulta 50 g smjörbolla (30 g hveiti, 20 g smjör) sósulitur
|