Uppskriftir
Forsíða Uppskriftir
Andabringur með hindberjum

Andabringur með hindberjum
Leiðbeiningar:
Skerið rendur í fituna á bringunum og ristið þannig í gegn að oddurinn rétt snerti kjötið. Steikið á mjög heitri pönnu í 3 mínútur á fituhliðinni og eina mínútu á kjöthliðinni. Færið bringurnar upp á fat og haldið fitunni sem er á pönnunni eftir. Blandið saman salti, kanil og sykri í skál og stráið yfir bringurnar. Nuddið kryddinu vel inn í kjötið. Setjið bringurnar í 180 °C heitan ofn og bakið í 15–20 mínútur.
Takið út og látið standa í 5 mínútur.
Setjið rauðvínið og líkjörinn saman í skál en takið frá um 80 ml af rauðvíninu og hrærið maísenamjölinu út í þann hluta. Blandið aftur saman við. Setjið í pott og bætið 2 msk. af andafitunni út í og látið sjóða í 3–4 mínútur en hrærið í á meðan. Setjið hindberin út í og hitið upp aftur. Smakkið til með salti og pipar.

Hráefni:

4 andabringur
2 tsk sjávarsalt
2 tsk kanill
4 tsk hrásykur
250 ml rauðvín
170 ml Créme de cassis líkjör
1 msk maísenamjöl
250 g hindber